Ný hraðstillanleg sláttukefli


Ekki fyrir löngu setti golfvalla vélarframleiðandinn John Deere á markað
nýjung við stillingar á slátturkeflum. Nú þarf ekki lengur að notast við
lykla og stilliskífur, einungis þarf hleðsluborvél til verksins.

John Deere kynnir ný sláttukefli QA5 og QA7 með “Speed Link System” sem
gerir það kleift að stilla sláttuhæðina, beggja megin samtímis, á nokkrum
sekúndum. Með nýrri tækni frá John Deere er nú hægt að stilla hæð
afturkefla með nákvæmni upp á 0,025mm einfaldlega með hleðsluborvél.

QA5 sláttukeflin eru 12,7 cm þvermál (5”) og fást í tveimur breiddum 45,7
cm (18”) og 55,9 cm ( 22”), 7 eða 11 hnífa.

QA7 sláttukeflin eru 17,8 cm þvermál (72”) og fást í þremur breiddum 55,9
cm (22”), 8 og 10 hnífa, 66 cm (26”) og 76,2 cm (30”), 5 og 8 hnífa.

 

Þrjár vélar í einni

Í þessari vél hefur Bobcat fyrirtækið náð að sameina kosti þriggja véla; smámokstursvélar, hjólaskóflu og skotbómulyftara

Helstu upplýsingar
• Lyftigeta: 2,2 tonn
• Lyftihæð: 5 metrar
• Fjórhjólastýrður
• Fjórhjóladrifinn
• Breidd: 184 cm
• Hæð: 198 cm
• Vél: Kubota dísel, 75 hestöfl

Gott úrval fylgihluta býðst með vélinni sem gerir eigendum kleift að taka að sér verkefni í nánast öllum geirum verklegra framkvæmda.

Vélaborg

 

 

 

Leitavél