Um Vélaborg

Vélaborg ehf er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 2004. Fyrirtækið starfar að þjónustu og innflutningi vinnuvéla og tækjabúnaðar fyrir hina ýmsu geira atvinnulífsins sem og einstaklinga. Varahlutaþjónusta Vélaborgar er ekki einskorðuð við umboð fyrirtækisins heldur leggjum við metnað okkar við að aðstoða viðskiptavini okkar á mjög breiðu sviði varahlutaöflunar. Fyrirtækið hefur á að skipa öflugum hópi samstarfsaðila utan landsteinanna hvort sem er við miðlun varahluta eða innflutnings vinnuvéla og búnaðar. Starfsfólk Vélaborgar er samhentur hópur með áralanga reynslu að baki sem samanlögð sem nýtist vel í þágu fyritækisins og viðskiptavina þess. Velkomin í Vélaborg.